Pælingar

Gaman að sjá þig

12.12.2008 12:55:39 / baddi

Jólasveinar 2008

Fyrsti jólasveinninn var Geir 12-12
 
Forsætis herra kom fyrstur
fanns að einn ætt' að ráða
Þó kannski á Þingvöllum kysstur
þá kann ekk' að hvetja til dáða

Síðan kom Ingibjörg Sólrún 13-12

Utanríkis ein var snót
Ekki öll sem sýndist
Var á virkjunum í mót
veglegt loforð týndist

Árni Matt kom 14-12

Fjármála fullhuga tæknir
fæsta hann reynir að sætta
Dagfinnur dýralæknir
duglaus, hættir að hætta

15-12 var komið að Birni dóms

Hugsjónirnar  hefur
hernaðarráðherrann
kirkjunnar klerkum gefur
kasaðan óþverrann

þann 16-12 kom Þorgerður Katrín

Mennta stelpan mála var
minniháttar frú
En íþróttunum alltaf þar
einatt reyndist trú

17-12 kom svo Guðlaugur Þór

Heilbrigðisráðherra heilinn minn
Horskur segir þá
Í USA ég alltaf finn
að einkavæða má

og þann 18-12 kom svo Einar K.

Löngum ég hef ei legið á
Landbúnaðarviti
Sjávarútveg, svei mér þá
slor og bein og sviti

Össur skreið svo inn 19-12

Einn þá tekur iðnaðinn

Ekki veit hvað hefur

Össur heitir auminginn

undurblítt hann sefur

Þá var komið að Jóhönnu Sig 20-12


Sveinkan er Sigurðardóttir

sannleg' á réttum stað

félagsmálin faglega sóttir

flestir héldu það


21-12 var svo Möllerinn


Siglfirðingur situr þar

sést á hverj' er hert

Nú er horfið norðurland

nú verður ekkert gert


22-12 kom svo Björgvin G



Veit maðurinn eitthvað um viðskipti meir

Verslunar eða banka

Gugginn hann stendur á fundi með Geir

gárunga lætur sig hanka


23-12 er komið að Þórunni


Hún heldur að hún haldi

að að Helguvíkin sé

á virkjananna valdi

veit ei hvorki né


Síðastur er svo sjálfur Davíð


Síðastur er sjálfur

Seðlabankastjóri

Aldrei hefur álfur

ausið meira fori


Og þar með líkur þessum litlu vísum um jólasveinana 13, vona að þið hafið haft smá gaman af


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 07:00:00 / baddi

Vísnagáta

Ég rakst á þessa inná www.ogmundur.is

HVER ER ÉG?
....
Alveg laus við þunga þanka
en þreytulegur yfirleitt,
syfjaður í seðlabanka,
ég sit og geri ekki neitt.

Vinir mínir virðast snjallir
og vilja flestir klekkja á mér.
Ef gleymist ég þá gleðjast allir.
Og gettu núna hver ég er.
....
Kristján Hreinsson

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2008 19:58:44 / baddi

Skattar

Nú er, illu heilli, ríkistjórn spillingar og valdhroka farin að kúra undir væng Æ EMM EFF. Hvar sem þessi boðberi frjálshyggjunnar hefur komið að "aðstoð" við lönd sem hafa lent í vandræðum hefur allt farið til fjandans. Bankakerfi vaxið hömlulaust og vextir hækkað. Spilling og fégræðgi, sem einkenna frjálshyggjuna hafa vaxið og dafnað sem aldrei fyrr. Og skattpíning á almenning hefur aukist.

Skattpíning, hvað er nú það? 

Réttlát skattlagning, til þess ætluð að styðja við velferðarkerfi og auka jafnrétti er bara af hinu góða, en skattlagning til þess ætluð að halda við fylleríispartíi valdamanna og auðmanna er skattpíning.

Ég er tilbúinn að borga háa skatta til þess að þurfa aldrei að draga upp veski ef ég þarf að leita til heilbrigðisstofnana eða tannlækna.

Ég er tilbúinn til að borga háa skatta til þess að börnin þurfi ekki að koma með svo mikið sem einn blýant í skólann.

Ég er tilbúinn til að borga háa skatta til þess að leyfa börnum og unglingum að stunda íþróttastarf ókeypis. Það vita það allir sem vilja að skólaíþróttir og sund er alls ekki nægileg hreyfing fyrir vaxandi börn og unglinga. Að ekki sé talað um forvarnargildi íþróttanna.

Ég er tilbúinn til þess að borga háa skatta til þess að þeir sem minna meiga sín í þjóðfélaginu geti lifað mannsæmandi lífi, en þurfi ekki að draga fram líftóruna á götum Reykjavíkur, enda flestir þeirra veikir á geði.

Ég er tilbúinn til þess að borga háa skatta til þess að tryggja það að aldraðir geti átt áhyggjulaust æfikvöld.

Ég er ekki tilbúinn að leggjast undir skattpíningu frjálshyggjunnar sem hygla þeim sem eiga peningana á kostnað okkar hinna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 22:21:51 / baddi

Nóg komið

Ég get ekki lengur setið á mér. Þið munið sjálfsagt ekki eftir bloggi frá mér um hagvöxtinn, ein af þessum fyrstu. Nú er verið að frysta allt. Ekki nóg með að bankarnir fengu að setja húsnæðiskerfið á hausinn og skuldsetja heimilin í landinu með okurvöxtum og verðtryggingu. Nú þegar allt er á beinni leið til andsk. á ekkert að gera til að snúa dæminu við. 

Mér finnst alltaf fáránlegt að þegar valdamönnum verða á mistök, þá þykjast þeir vera að "bera ábyrgð á gerðum sínum" með því að reyna að redda hlutunum fyrir horn. Að bera ábyrgð á mistökum er að segja: "Ég tók vitlausa ákvörðun, ég er ekki starfi mínu vaxin(n). Ég ætla að leyfa öðrum að reyna að gera betur".  Látum þá bera ábyrgð, heimtum nýjar kosningar.

Nú er horft til IMF til þess að bjarga málunum. Hvaða áhrif hefur það haft til þessa í þeim löndum sem IMF hefur komið að? Aukin verðbólga, hærri vextir, meiri spilling. Viljum við það?

Ég hef alltaf sagt, að á tímum sem þessum á ríkisvaldið að grípa inní. Gera eins og Rosevelt gerði til þess að koma Bandaríkjunum upp úr kreppunni á sínum tíma. Fara í framkvæmdir! Leggja vegi, grafa göng. Nú eru fullt af iðnaðarmönnum sem sitja heima, búnir að missa vinnuna, redda þeim verkefnum. Klára tónlistarhús, klára hálfbyggð íbúðarhús. Selja þau svo á sanngjörnu verði, eða jafnvel nota undir heimilislausa Reykvíkinga. Allavega að koma hjólunum í gang, öðruvísi gengur þetta aldrei.

Það er ekki rétta leiðin að hækka stýrivexti til þess að fá einhverja fjármálagamblara til þess að kaupa krónur. Það hefur enginn trú á þessu kerfi lengur. 

Hvað á þá að gera með þá sviðnu jörð sem íslensku bankarnir (með sinni græðgisstefnu) hafa skilið eftir sig. Svarið þarf ekki að vera flókið, látið embættismennina sjá um að settla málin, nota diplómataþjónustuna. Semja! Sýna að við erum þjóð sem er ekki hrædd við að bretta upp ermarnar og taka skóflu í hönd til þess að vinna okkur út úr vandanum. 

Það vilja allir hjálpa okkur. Við vorum í vöruskiptum við Rússa. Seldum þeim síld og fengum í staðin olíu og Moskvíta. Gerum þetta aftur. Hættum að einblína á peningana, horfum frekar á hin sönnu hagfræðilegu gildi, vinnuafl og vörur. 

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 12:22:44 / baddi

Vísnagátur

Ég eignaðist bók með vísnagátum eftir Gunnar Kr. Sigurjónsson. Hér eru nokkur dæmi og nú vil ég að þið komið með svörin.

Suðvesturkjördæmi kallarðu slík
kringlótt er á rokki og snýst
jaðar efst er á flestri flík
fer um prestsins hálsinn víst

Meira næst

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 09:42:27 / baddi

Sidasti dagur

Allo allo

Nu er sidasti dagurinn okkar herna i Bulgariu. I gaer skellti kallinn ser til Nesebar, hjarta Bulgarskrar menningar. Skodadi rustir fra Thrakiu og eldgamlar kirkjur. I gamla baenum i Nesebar bjuggu um 40 moldrikar fjolskyldur og hver fjolskylda byggdi sina kirkju. Sidan voru faestar af thessum kirkjum notadar sem gudshus, miklu frekar sem samkomustadir, skolar og tonlistarhus. Tharna voru t.d. tvaer kirkjur, sem stodu hlid vid hlid. I annari hafdi verid skoli fyrir stelpur, en fyrir straka i hinni. Straka kirkjan var miklu staerri og veglegri en stelpukirkjan. Leidsogumadurinn sagdi ad thetta hafi hvergi thekkst nema tharna. Sidan var onnur kirkja, kollud gongukirkjan, thar sem var malverk af Mariu mey med Jesubarnid, nema ad baedi voru malud sem svertingjar. Thessi mynd er ein af fjorum i heiminum thar sem thetta var gert.

Stelpurnar voru bara heima i kerlingabudarrapi.

I dag a ad horfa a Formuluna, Sja Massa massa tha felagana. Sidan aetlum vid ad fara i Sirkus i kvold. Svona sem hapunkt ferdarinnar. I fyrra forum vid ad sja danssyninguna Fjorir vindar en nu a thad ad vera Sirkusinn.

Ja, og Maja. Sigrun Birna er buin ad panta sodna ysu med kartoflum og feiti i matinn. Farin ad sakna islenska heimilismatarins.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 10:58:39 / baddi

Ferdalog i Bulgariu

Hallo allir

Sidasta midvikudag tokum vid leigubil og ferdudumst um Bulgariu. Forum ad heimsaekja klaustur her rett hja og skoda Bulgorsktorp og Sigaunatorp. Sigaunathorpin voru svolitid serstok. I odru voru fataekir sigaunar, allt i nidurnislu, en gerfihnattadiskur  vid hvert hus.  I hinu bua rikir sigaunar husin marmaraklaedd og a.m.k. 3 bilar vid hvert. BMW, Mercedes og Audi voru vinsaelastir. Svo for laigubilstjorinn ad benda okkur a hus sem hann hafdi selt, adallega bretum og tjodverjum, svo ad eg for ad spyrja hann hvort ahnn vissi um einhverja ibud eda hus i thorpi handa okkur. Hann helt tad nu. Baud okkur heim til sin i snafs og vin sem hann bruggadi sjalfur og benti okkur svo a husid sem stod a moti hans. Tetta hus fer a netid i naestu viku sagdi hann, gomul hjon sem bua tar og vid gaetum fengid tad a 85000 evrur. 8 herbergi a tveim haedum, godur brunnur (vatn er adalvandamalid) og 2200 fermetra gardur, adeins! Afhent med ollum husgognum og bufenadi (their eru alltaf med einhver husdyr, her voru kaninur, stundum geitur eda asnar, kjuklingar eda bara hvad sem er).

Fimtudaginn forum vid svo til Kosolov ad skoda adeins nyrri hus og hus a byggingarstigi. Mjog skemmtileg ferd thad.

Sidasta fostudag forum vid Sigrun svo i Jeppa Safari - aevintyraferd a heimsmaelikvarda, en eg aetla ad leifa Sigrunu ad segja betur fra thvi a sinu bloggi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 16:42:10 / baddi

Bulgaria

Nu erum vid komin til Bulgariu i svaka sol og hita. Samt ekki eins heitt og i fyrra.

Nu skal logd ahersla a ferdir. Vid erum buin ad boka okkur i jeppasafari a fostudag, ibudaskodun hja fasteignasolu a fimmtudag og thorpaskodun med leigubil a morgun.

Svo a ad fara til Balchic og Sokolov og a Waldfest (Bulgarskt skemmtikvold) ad ogleymdri sjoraeningjasiglingu. Vigdis nennir thvi ekki, vegna thess ad vid forum sko lika i fyrra, thannig ad thad verda bara vid Sigrun sem forum thangad.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 17:21:46 / baddi

Getur þú flogið til helstu borga í Evrópu

Hér er skemmtilegur leikur sem reynir á landafræðikunnáttuna.

 

<embed src="http://www.lufthansa-usa.com/useugame2007/html/LH-144-07_myspacescore.swf?score_id=28123" quality="high" bgcolor="#ffffff" width="300" height="250" name="LH-144-07_myspacescore" align="middle" type="application/x-shockwave-flash"></embed> 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 23:53:31 / baddi

Hvor notar þú hægri eða vinstri hluta heilans meira?

Farið inná:

http://www.news.com.au/perthnow/story/0,21598,22492511-5005375,00.html

og þá kemur hið sanna í ljós. Bara gaman að þessu! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 23:53:06 / baddi

Tap gegn Japönum

Kvennalandsliðið tapaði leiknum við Japani í dag 31-24 eftir að staðan hafi verið 15-15 í hálfleik. Þórey Rósa náði þó að skora 3 mörk :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 23:23:37 / baddi

Þórey Rósa markahæst

Hún Þórey mín spilaði sinn fyrsta landsleik með A-liði kvenna í kvöld. Þessi leikur er liður í 4 landa keppni sem er haldin í Hollandi. Ég man ekki í bráð hvaða önnur lönd taka þátt, enda skiptir það ekki miklu máli.

En aðalatriði er að hún Þórey stimplaði sig rækilega inn í sínum fyrsta landsleik með 5 mörkum og var markahæst íslensku stelpnanna. Leikurinn fór 24 - 22 fyrir Hollendingum, en það var sko ekki Þóreyju að kenna. :) Minn er sko ekkert smá stoltur af stelpunni.

Leikurinn var sýndur beint á hollenskri stöð, á netinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 17:03:17 / baddi

Ljóð

My Spell Checker

For all of you who have emailed me when my spelling is wrong...

Eye halve a spelling chequer
It came with my pea sea
It plainly marques four my revue
Miss steaks eye kin knot sea.

Eye strike a key and type a word
And weight four it two say
Weather eye am wrong oar write
It shows me strait a weigh.

As soon as a mist ache is maid
It nose bee fore two long
And eye can put the error rite
Its rarely ever wrong.

Eye have run this poem threw it
I am shore your pleased two no
Its letter perfect in it's weigh
My chequer tolled me sew.

 

Segið svo að villuvarnir virki ekki 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:35:49 / baddi

Pælið í því

í Líbanon er víst löglegt fyrir karlmenn að hafa kynmök við dýr - en dýrið verður að vera kvenkyns. Hafi karlmaður kynmök við karlkyns dýr er því refsað með dauðadóm.

 

Meikar sens

 

í Santa Cruz í Bólivíu er það ólöglegt að hafa kynmök við konu og dóttur hennar á sama tíma.

 

Hmmm - var þetta það algengt að það þurfti að setja lög yfir þetta? 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:30:28 / baddi

Sagan af Sigrúnu Birnu

Ég hef verið að treina mér að setja þessa litlu sögu niður á blogg, því ég vildi ekki vera á undan Sigrúnu með það. En nú eru litlar líkur á því að þessi elska fari að skrifa um þessa uppákomu, þannig að ég sé mig tilknúinn.

 

Fimmtudaginn síðasta fór hún Sigrún í fyrsta tónskólatímann - fyrir ykkur sem ekkert fréttið þá er hún farin að læra að spila á Franskt Horn. Fyrsti tíminn gekk vel og hún kom heim með þær tilskipanir að hún ætti að æfa sig að spila langt C (lærði C D og G í tímanum og getur þess vegna farið að spila öll lög :) ). Dagurinn leið svo við leik á róló og Sigrún ætlaðiað vera töffari og stökkva yfir róluna. Það gekk ekki betur en svo að hún flæktist í rólunni með fæturnar og skall beint á trýnið. Viði það brotnuðu tvær  framtennur. Æ Æ Hún er nú fljót að hugsa, vissi sem var að allir fullorðnir voru í vinnu svo hún kallar upp: "Sækið Úlfar", en hann var víst heima. Hann bar hana svo inn í hús og hrindi á mömmu sína. Gulla hringdi þá í Héðinn tannlækni og brenndi með Sigrúnu þangað. Hringdi í Vigdísi og mig og við komum eins fljótt og auðið var. Gulla sagði mér reyndar að ég þyrfdi að fara að drífa mig heim því Sigrún hefði brotið tennur. Á leiðinni heim var ég að hugsa með mér, "Af hverju fóru þær ekki með hana beint til tannlæknis" Svo þegar ég var kominn heim var náttúrulega enginn þar, þannig að ég fór á tannlæknastofuna (svona uppá von og óvon) og viti menn þar sat Sigrún í stólnum og brosti þessu fína tannbrots brosi. Sem betur fer fundust brotin úr tönnunum og þau voru límd (að sjálfsögðu með tannataki). nú er bara fylgst vel með, hvort tennurnar fari að aflitast (drepast) en þá þarf að vinna þær upp með rótarfyllingum og tilheyrandi látum. Sigrún gat að sjálfsögðu ekki æft sitt langa C, enda með sprungna vör.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 20405
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 17 júlí
Allt annað
Klukkan